Við fengum að vera þar um páskana. Ég hef nú bara aldrei verið eins góður eins og þá daga sem við vorum þarna. Í fyrsta lagi svaf ég alla leið frá Reykjavík og í Úthlíð og svo var ég hlæjandi kátur þar til ég fór að sofa um kl. 22:30 fyrsta kvöldið. Ég svaf vel og vaknaði bara x1 til að drekka um nóttina. Svo svaf ég alveg til 08:30 um morguninn. Svo svaf ég líka aftur í u.þ.b. 1,5 klst. fyrir hádegi og svo úti í vagninum mínum í 2,5 klst. Þetta er nú algjört met. Síðan fékk ég að fara í heita pottinn með foreldrum mínum. Mamma var búin að kaupa handa mér sundhettu og þegar hún var komin á, sögðu mamma og pabbi að ég væri blái Speedo-kjúklingurinn, ég var sem sé svo flottur með hettuna. Svona góða daga átti ég allann tímann þarna í sveitasælunni.
Við fengum nú allra handa veður eins og gengur, en það var nú samt enn betra veður en búið var að spá. Tvo morgna var svo mikil snjókoma að mamma og pabbi héldu að við yrðum bara að vera inni allan daginn en svo kom bara sól og blíða upp úr hádeginu, alveg sólbaðsfært. Þarna var hókus pókus stóll sem ég hafði gaman af að leika mér í. Ég fékk líka að fara út í miðjan skafl í stólnum og þótti mér það nú fjör. Við fórum í gönguferð niður að Réttinni, veitingastað Úthlíðar og gerðum okkur ýmislegt fleira til dundurs. Amma og afi í Blesu komu í heimsókn á Föstudaginn langa og fórum við öll saman í heita pottinn og á laugardeginum kíkti Arnfinnur til að færa okkur tuskur og viskastykki því að mamma er með tuskuæði og gat nú ekki einu sinni slappað af þarna kerlingin!
Við kíktum upp að Gullfossi á Páskadag í ágætu veðri og fengum okkur ís og pylsu í Geysisstofu og þar keypti ég lyklakippu handa afa og litla
Fyrri síða Síða 13.
 
bjöllu handa ömmu. Svo keypti ég lítinn ísbjörn handa Hauki í Kaffi Gullfossi.

Svo var rosalega hvasst á mánudeginum þegar við fórum heim. Ég svaf líka alla leiðina heim til Reykjavíkur og svo fórum við beint í Blesu til að hitta Hauk frænda en hann var ekki heima þegar við komum en var svo rétt að koma heim, sofandi í vagninum sínum, þegar við vorum að fara. Svo átti ég nokkrar frekar erfiðar nætur eftir að ég kom heim úr sveitinni, þ.e. ég fór að sofa um kl. 22:00 að venju og svaf ljómandi vel í 3 – 4 klst. en þá fór ég að iða og væla smá eins og mér liði ekki mjög vel. Mamma varð móðursjúk og sagði að ég væri nú örugglega komin með í eyrun og allt þetta sem kerlingar ímynda sér, en pabbi hlustaði ekki á hana. Svo liðu dagarnir, ég svaf u.þ.b. 30 mín. í senn x2 – x3 yfir daginn og var stundum pínu pirraður af því að ég var þreyttur. Svona er þetta búið að ganga um tíma. Í gærkvöld, 10. apríl á 6 mánaða afmælinu mínu, þá fórum við í sund og ég var voða góður og duglegur í sundinu, borðaði vel af graut þegar heim kom, fór í smá heimsókn til afa og ömmu í Blesu og svo heim að sofa kl. 22:00 og svaf í alla nótt nema að ég vaknaði x1 til að drekka um 3:30 og vaknaði svo kl. 8:15. Þannig að nú er mamma líka vel hvíld. Síðan fór ég í 6 mánaða skoðun til Önnu Bjargar og Eyjólfs og Eyjólfur sagði að ég fengi 10+ í þroska. Ég er auðvitað ánægður með það. Nú er ég líka sofandi, sofnaði þegar ég kom heim kl. 10:20 og er enn sofandi kl. 10:56.
Síða 14. Næsta síða